Jarðskjálftinn við Kaldárholt austan Þjórsár í gærkvöldi varð á sprungu sem hrökk 14. ágúst 1784 og orsakaði skjálfta sem var 7 að stærð.
Engir forskjálftar urðu á undan og örfáir eftirskjálftar mældust eftir skjálftann í gærkvöldi. Þetta er stærsti skjálfti sem orðið hefur á þessum slóðum frá árinu 2000 og stærsti skjálfti á Suðurlandsundirlendinu frá árinu 2008.
Í tilkynningu frá Veðurstofunni segir að hugsanlega sé um að ræða eftirskjálfta frá skjálftanum sem varð 17. júní 2000 þar sem losnaði ekki um alla spennu á þessu svæði á þeim tíma. Ekki er óhugsandi að annar skjálfti af svipaðri stærð, um fjögur stig, gæti orðið á þessum slóðum á næstunni.
Suðurlandsundirlendi er eitt virkasta jarðskjálftasvæði landsins og samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni geta skjálftar þar náð stærð allt að 7.