Sveitarstjórn Flóahrepps hefur mótmælt hækkun verðskrár Rarik á rafmagni. Hækkunin nemur 7,5 % í dreifbýli og 5% í þéttbýli.
Sveitarstjórn mótmælir hækkun dreifingar- og flutningskostnaðar til raforkukaupenda í dreifbýli umfram það sem gerist til annarra kaupenda.
Í bókun sveitarstjórnar segir að raforka sé að stærstum hluta framleidd á landsbyggðinni og flutt um landið með raflínum sem liggja um eignarlönd og takmarka nýtingu þeirra. Sveitarstjórn telur það óviðunandi að landsmönnum sé mismunað með þessum hætti.