Mótmæla harðlega áformum um skert framlög til jöfnunarsjóðs

Ráðhús Árborgar. sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar mótmælir harðlega þeim áformum fjármálaráðherra og ríkisstjórnar að skerða framlög til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um a.m.k. 2,8 milljarða króna á árunum 2020 og 2021.

Þetta kemur fram í bókun sem samþykkt var á fundi bæjarstjórnar Árborgar í gær.

„Skerðingin kemur harðast niður á útgjaldajöfnunarframlögum, en þau renna einkum til sveitarfélaga á landsbyggðinni sem hafa mörg hver veikan fjárhag. Skerðingin kemur einnig niður á framlögum til þjónustu við fatlað fólk og getur falið í sér að dregið verði úr þeirri þjónustu. Áætlað tekjutap sveitarfélaga á Suðurlandi af framlögum til útgjaldajöfnunar og vegna fasteignaskatts er um 505 milljónir kr og vegna málefna fatlaðra 29 milljónir króna. Framlög til málefna fatlaðra hafa ekki staðið undir rekstrarkostnaði og bætir þetta ekki stöðu þess málaflokks,“ segir í bókun bæjarstjórnar.

Árið 2015 voru samþykktar leiðréttingar á framlögum til málefna fatlaðra sem námu um 1,5 milljarði króna. Sú niðurstaða var samkomulag sem byggði á löngu og ítarlegu samráðsferli milli ríkis og sveitarfélaga.

„Að þurrka nánast út með einu pennastriki þann árangur sem þá náðist er í hróplegu ósamræmi við það samstarf við ríkið sem Samband íslenskra sveitarfélaga hefur lagt mikla vinnu í að styrkja á liðnum áratug,“ segir bæjarstjórn Árborgar og bætir við að einhliða ákvörðun ríkisvaldsins af þessu tagi sé í andstöðu við það formlega samráðsferli ríkis og sveitarfélaga sem hefur þróast á undanförnum árum og fela áform þessi í sér algeran trúnaðarbrest gagnvart sveitarfélögunum í landinu.

„Ekki getur með nokkrum hætti talist eðlilegt að áhersla á að bæta afkomu ríkissjóðs skili sér í skerðingum á tekjum sveitarfélaganna, sem standa undir mjög stórum hluta almannaþjónustu í landinu,“ segir í niðurlagi bókunarinnar þar sem þess er krafist að áform um skerðingu tekna Jöfnunarsjóðs verði afturkölluð þegar í stað.

Fyrri greinHvolsskóli sigraði í Suðurlandsriðlinum
Næsta greinHamarsmenn sterkir á heimavelli