Í kvöld kl. 20 verður forvarnarfundur í Sunnulækjarskóla á Selfossi þar sem rætt verður um skaðsemi og kostnað munn- og neftóbaksneyslu.
Yfirskrift fundarins er „Munnkrabbamein gæti aukist á næstu árum“.
Hallur Halldórsson tannlæknir mætir á fundinn og fjallar um skaðsemi slíkrar neyslu fyrir tennur og tannhold og gerir grein fyrir viðgerðarkostnaði.
Á fundinum verður einnig farið í helstu forvarnarmálin sem brenna á fólki og foreldrum gefinn kostur á að koma með ábendingar og spurningar til forvarnarhóps Árborgar.
Fundurinn er opinn öllum íbúum Árborgar.