Nafn konunnar sem leitað er að

Konan sem leitað hefur verið að í Fljótshlíð frá því á þriðjudagskvöld heitir Ásta Stefánsdóttir, 35 ára lögfræðingur búsett í Reykjavík.

Sambýliskona hennar hét Pino De Los Angeles Becerra Bolanos en hún fannst látin í Bleiksárgljúfri á þriðjudagskvöld.

Ásta er há og grönn, um 180 cm á hæð með ljós skollitað hár.

Dregið hefur verið úr formlegri leit en rannsókn málsins og upplýsingaöflun er haldið áfram og biður lögreglan alla þá sem voru á ferð í Fljótshlíð, á svæðinu innan við Múlakot, frá því að kvöldi laugardags og fram á mánudagskvöld, að hafa samband vegna upplýsingaöflunar í málinu. Sími lögreglunnar er 488 4110 og einnig í netfangið sveinnr@logreglan.is.

Áfram verður leitað og fylgst með vatnasvæðum Markarfljóts og í innanverðri Fljótshlíð. Leit er ekki hætt, en hún verður í minni sniðum heldur en um og fyrir helgina.

Fyrri grein17. júní hátíðarhöldin færð inn í hús í Flóahreppi
Næsta greinEin elsta sundlaug landsins opnuð í Hvammi