Maðurinn sem lést þegar fólksbifreið lenti út af Biskupstungnabraut skammt frá Alviðru á fimmtudagskvöld hét Alexandru Bejinariu, 23 ára gamall frá Rúmeníu.
Hann var til heimilis í Hveragerði þar sem hann var við störf ásamt unnustu sinni sem einnig var í bifreiðinni.
Rannsókn hefur leitt í ljós að hann var farþegi í farangursrými bifreiðarinnar sem er skutbíll, kastaðist út úr henni enda ekki í öryggisbelti og stöðvaðist bifreiðin að ofan á honum.
Samferðamenn hans og aðrir vegfarendur hjálpuðust að við að ná honum undan bílnum og var hann í framhaldi af því fluttur á sjúkrahús í Reykjavík þar sem hann lést.