Maðurinn sem lést í slysinu í Tungufljóti í gær hét Sigurður Kristófer McQuillan Óskarsson. Hann var formaður Björgunarsveitarinnar Kyndils í Mosfellsbæ. Slysið varð á æfingu í straumvatnsbjörgun sem fram fór í og við Tungufljót í gær.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Borghildi Fjólu Kristjánsdóttur, formanni Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
„Hugur minn og allra félaga í Slysavarnafélaginu Landsbjörg er með aðstandendum hans og félögum og okkar verkefni núna er fyrst og fremst að taka utan um þann hóp með allri þeirri sálrænu aðstoð sem við getum veitt, og þau vilja þiggja,“ segir Borghildur Fjóla.
Rannsókn slyssins er í höndum lögreglunnar á Suðurlandi og mun Landsbjörg veita alla þá aðstoð við hana sem beðið er um.