Nafnasamkeppni vegna nýs hringtorgs

Hringtorgið á mótum Eyravegar, Suðurhóla, Eyrarbakkavegar og Hagalæks. Ljósmynd/Árborg

Á fundi Eigna- og veitunefndar í gær var ákveðið að efna til nafnasamkeppni vegna nýs hringtorgs á gatnamótum Eyravegs, Suðurhóla, Eyrarabakkavegar og Hagalæks á Selfossi.

Nafnasamkeppnin er öllum opin og íbúar eru hvattir til að taka þátt í samkeppninni. Frestur til að skila inn tillögum að nafni er til og með föstudeginum 19. febrúar næstkomandi.

Tillögum á að skila með tölvupósti í netfangið mannvirkja.umhverfissvid@arborg.is. Upplýsingar um nafn, heimilisfang og síma sendanda þarf að koma fram í póstinum.

Verðlaun verða veitt fyrir þá tillögu sem verður fyrir valinu.

Fyrri greinHárfínn munur í stóru útboði
Næsta greinBæjarráð Árborgar leggst gegn frumvarpi um hálendisþjóðgarð