Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps hefur samþykkt að bjóða nemendum grunnskólans upp á hafragraut á morgnana.
Þá gefst foreldrum kostur á að kaupa ávexti og grænmeti í stað nestis.
Það var fræðslunefnd sem skoraði á sveitarstjórn að bjóða nemendum upp á þessa morgunhressingu eftir nokkra umræðu um hollustu skólamáltíða.