Nemendur aðstoða í mötuneyti og gæslu

Í gær var gengið frá undirritun á nýjum samningi milli Sveitarfélagsins Árborgar og nemenda í 10. bekk Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri.

Nemendur taka að sér aðstoð í mötuneyti skólans og taka þátt í hádegisgæslu að höfðu samráði við skólastjórnendur og umsjónarkennara.

Greiðslur fyrir þessa vinnu renna svo óskiptar í ferðasjóð 10. bekkinga.

Vigfús G. Helgason, umsjónarkennari, Sunna Valdimarsdóttir, formaður nemendafélagsins, Viktoría Rós Jóhannsdóttir, fulltrúi í stjórn nemendafélagsins, Ásta Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Sveitarfélagsins Árborgar og Böðvar Bjarki Þorsteinsson, aðstoðarskólastjóri undirrituðu samninginn að viðstöddum skólastjóra, fræðslustjóra, formanni fræðslunefndar og nemendum í 10. bekk.

Fyrri greinGrunnmenntaskóli í Þorlákshöfn
Næsta greinHamar semur við Örn og Hollis