Í lok apríl gengu nokkrir nemendur Fjölbrautaskóla Suðurlnads, ásamt kennurum, á Eyjafjallajökul.
Farið var með rútu að Seljavöllum, þaðan sem gengið var á topp jökulsins. Að lokinni göngu fundu einhverjir fyrir þreytu og einhver eymsli gerðu vart við sig, en umfram allt voru allir glaðir og ánægðir með sjálfa sig og afrekið, segir í frétt á vef FSu.
Undir Eyjafjallajökli er eldkeila sem gaus síðast árið 2010. Fjallið er eitt af hæstu fjöllum Suðurlands, 1.666 m hátt og reynir á líkamlegt og andlegt þol göngumanna. Hluta af leiðinni var gengið í línu, en það er mikilvægt öryggisatriði þegar gengið er yfir sprungusvæði eins og oft má finna á jöklum.
Í frétt skólans segir að nemendurnir hafi staðið sig eins og hetjur og verið sjálfum sér og skólanum sínum til sóma.