Í dag kl. 16 verður gerð prófun á viðvörunarkerfi sem sendir neyðarskilaboð frá Almannavörnum í farsíma á hættusvæðum á Íslandi.
Kerfið hefur verið þróað til notkunar fyrir Almannavarnir á Íslandi og virkar með þeim hætti að hægt er að senda boð um yfirvofandi hættu í farsíma til íbúa og ferðamanna á ákveðnum svæðum svo fremi að þar sé farsímasamband.
Eftir að landsvæði hefur verið valið getur Neyðarlínan kallað fram alla farsíma, erlenda og innlenda, sem eru innan þjónustusvæðis símafyrirtækjanna á því svæði og sent neyðarskilaboð með upplýsingum um aðsteðjandi hættu og leiðbeiningum þar að lútandi í þá farsíma sem koma fram í kerfinu.
Til að byrja með verða neyðarboðin send á íslensku og ensku frá Neyðarlínunni frá númerinu 112 og aðeins þegar nauðsyn krefur.
Kerfið verður prófað í dag kl. 16 og verða þá send prófunarboð í farsíma á þjónustusvæðum í og við Vík í Mýrdal.
Að verkefninu standa Neyðarlínan, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, Síminn, Nova, Vodafone og hugbúnaðarfyrirtækið Samsýn. Margir aðilar hafa lagt sitt af mörkum við þróun og prófanir á kerfinu og var einnig samþykkt fjárveiting af Alþingi til verkefnisins.
Í tilkynningu frá Almannavörnum segir að viðvörunarkefið sé mikilvægt skref í að auka öryggi íbúa landsins og ferðamanna og verði notað ásamt öðrum hefðbundnum viðvörunum almannavarna.