Níu manns voru fluttir á sjúkrahús eftir að rúta og fólksbíll lentu í hörðum árekstri á Biskupstungnabraut ofan við Borg í Grímsnesi laust eftir klukkan ellefu í morgun.
Fimm sjúkrabílar frá Selfossi fóru á vettvang ásamt lögreglu og tækjabílum frá Brunavörnum Árnessýslu á Selfossi og Laugarvatni. Beita þurfti kluppum til að ná ökumanninum út úr fólksbílnum en hann var einn á ferð.
Mikil hálka er á Biskupstungnabraut en samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi liggja tildrög slyssins ekki fyrir á þessari stundu.
Vegurinn var lokaður á meðan viðbragðsaðilar athafna sig á vettvangi en umferð var beint um Sólheimaveg.
UPPFÆRT KL. 13:45
Búið er að opna fyrir umferð um Biskupstungnabraut. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu voru tuttugu manns í rútunni og slösuðust átta farþegar. Ökumaður fólksbílsins slasaðist mest og var fluttur á slysadeild í Reykjavík. Hinir átta voru minna slasaðir og voru þeir ýmist fluttir á slysadeild í Reykjavík eða á heilsugæsluna á Selfossi.