Í dagbók lögreglunnar á Suðurlandi kemur fram að fjórir ökumenn voru kærðir fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna og einn er grunaður um að hafa ekið undir áhrifum áfengis í síðustu viku.
Af þessum fjórum reyndist einn þeirra vera á ferðinni þrátt fyrir að hafa verið sviptur ökurétti.
Í síðustu viku var ökumaður vörubíls, með uppmokstur úr grunni á Selfossi, kærður fyrir að flytja of þungan farm. Farmurinn reyndist vera 4,3 tonnum yfir leyfðri öxulþyngd á stöðvunarstað.