Ákveðið hefur verið að ráðherrar ríkisstjórnarinnar fari í tvöfalda skimun og viðhafi smitgát á milli eftir að nokkur kórónuveirusmit greindust í gær hjá einstaklingum sem dvöldu á Hótel Rangá.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráðinu.
Hótel Rangá sendi frá sér tilkynningu í gærkvöldi um að hótelinu hafi verið lokað tímabundið vegna Covid-19 smits sem þar hafi greinst. Hótelið verður lokað næstu daga á meðan smitrakning og sótthreinsun fer fram.
Ríkisstjórnin snæddi kvöldverð á hótelinu þriðjudaginn 18. ágúst. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar teljast til ytri hrings hins mögulega smithóps og eru því ekki hluti þess hóps sem auknar líkur eru á að hafi verið útsettur fyrir smiti. Tveir ráðherrar snæddu ekki á Hótel Rangá, heilbrigðis- og félagsmálaráðherra, og þurfa því ekki að undirgangast ráðstafanirnar.
Ráðstafanir sóttvarnaryfirvalda í kjölfar athugunar smitrakningarteymis skipta þeim sem höfðu viðkomu á Hótel Rangá í þrjá hópa. Fyrsti hópurinn er sá sem er líklegastur til að hafa verið útsettur fyrir smiti og hefur í dag 14 daga sóttkví. Annar hópurinn er talinn minna líklegur til að hafa verið útsettur fyrir smiti og fer í eina skimun og viðhefur úrvinnslusóttkví þar til niðurstaða úr skimun berst. Þriðji hópurinn, sem ríkisstjórnin tilheyrir og er sömuleiðis minna útsettur fyrir smitum, fer í tvöfalda skimun og viðhefur smitgát á milli, sem er sú aðferð sem notuð hefur verið fyrir heilbrigðisstarfsfólk, lögreglufólk, framlínufólk í orkufyrirtækjum og lykilstarfsfólk hjá fjölmiðlum og í stjórnkerfinu.