Í gær tók lögreglan á Selfossi átta ökutæki úr umferð vegna þess að eigendur þeirra höfðu vanrækt vátryggingaskyldu.
Bifreiðarnar höfðu því verið í umferð ótryggðar sem er vissulega mjög alvarlegt mál í þeim tilvikum sem ökumenn þeirra valda tjóni sem einmitt hefur átt sér stað í nokkrum tilvikum síðastliðna mánuði.
Sekt við þessu broti eru 30.000 krónur og segir lögreglan að þeim aurum væri betur varið í að viðhalda ábyrgðartryggingunni.