Ný gönguleið hefur verið stikuð yfir Goðahraun á Fimmvörðuhálsi. Liggur gönguleiðin m.a. um gígana Magna og Móða og er leiðin merkt með gulum stikum.
Á vef Umhverfisstofnunar kemur fram að við val á gönguleið var haft í huga að röskun á nýja hrauninu yrði í lágmarki en jafnframt að ferðamaðurinn gæti notið hins stórkostlegu landslags og náttúruminja sem þar er að finna.
Hafa ber í huga að mikil gosaska er á öllu svæðinu og getur orðið mikil svifryksmengun og villugjarnt þegar hreyfir vind.
Stikun leiðarinnar var framkvæmd í samstarfi eftirtalinna aðila: Ríkislögreglustjóra-Almannavarnadeild, sýslumann og lögreglu á Hvolsvelli, sveitarfélagið Rangárþing eystra, Skógrækt ríkisins, Ferðafélagi Íslands, Ferðamálastofu, Útivist, Farfugla og Umhverfisstofnunar.