Brunavarnir Rangárvallasýslu hafa fest kaup á hluta af iðnaðarhúsi sem BR Sverrisson ehf er að byggja á Hellu. Fyrsta skóflustungan að húsinu og þar með nýrri slökkvistöð var tekin í dag.
Viðstaddir skóflustunguna voru sveitarstjórar og oddvitar í Rangárvallasýslu ásamt slökkviliðsstjóra og stjórnarmönnum Brunavarna Rangárvallssýslu.
Húsið er alls 554fm2 en brunavarnir kaupa 319 fm2 með 110fm2 millilofti. Húsið verður algjör bylting í aðstöðu fyrir Brunavarnir Rangárvallasýslu þar sem það leysir af hólmi eldra húsnæði sem nýtt hefur verið frá 1969 og er í miðju íbúðarhverfi á Hellu.
Gert er ráð fyrir að nýtt hús verði tekið í notkun snemma árs árið 2020.