Nýbygging við Ás tilbúin árið 2023

Dvalarheimilið Ás. Ljósmynd/Dvalarheimilið Ás

Húsnæði hjúkrunarheimilisins Áss í Hveragerði verður stækkað með nýrri byggingu með 22 hjúkrunarrýmum til að bæta aðstöðu heimilisfólks í Ási og útrýma tvíbýlum.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Aldís Hafsteinsdóttir bæjarstjóri undirrituðu nýlega samning um samstarf bæjarfélagsins og heilbrigðisráðuneytisins um framkvæmdina. Miðað er við að þær hefjist fyrir lok þessa árs og að heimilið verði tilbúið til notkunar fyrri hluta árs 2023.

Í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu segir að þörf á endurbótum á gamla hjúkrunarheimilinu í Ási sé orðin brýn, m.a. þar sem meiri hluti hjúkrunarrýmanna eru tvíbýli, alls 17 talsins. Í viðmiðum um skipulag hjúkrunarheimila er m.a. gerð sú krafa að allir íbúar hjúkrunarheimila eigi kost á einbýli með einkabaðherbergi.

Nýbyggingin verður um 1.430 fermetrar að stærð og rís á lóðinni við Hverahlíð 21 og 23, gegnt gamla heimilinu. Áætlaður byggingarkostnaður er rúmur 1 milljarður króna og skiptist þannig að 85% greiðast úr ríkissjóði en Hveragerðisbær greiðir 15%.

Gamla heimilið fært til nútímalegra horfs
Í kjölfar nýframkvæmdanna mun sjálfseignarstofnunin Ás ráðast í endurbætur á gamla hjúkrunarheimilinu sem verður fært til nútímalegs horfs. Við úthlutun úr Framkvæmdasjóði aldraðra fyrr á þessu ári var Ási veitt 100 milljóna króna framlag til endurbóta. Stoðþjónusta eins og framreiðslueldhús og skrifstofuaðstaða fyrir stjórnendur verður samnýtt fyrir bæði húsin. Hjúkrunarrýmum í Ási fjölgar um fjögur með þessum framkvæmdum.

Fyrri grein450 þúsund skref í þágu góðs málefnis
Næsta greinAukið eftirlit við Lyngás og Hellu