Nýi vegkaflinn opnaður á laugardag

Nýji Ölfusvegurinn yfir Varmá verður hægra megin við nýjan Suðurlandsveg á þessari mynd. Mynd/Mannvit

Ekki tókst að opna fyrir umferð um nýjan Suðurlandsveg milli Kotstrandarkirkju og Hveragerðis í dag, eins og til stóð.

Opnað verður fyrir veginn um miðjan dag á morgun, laugardag, á milli kl. 14 og 15.

Opnunin verður aðeins á hluta vegarins til að byrja með. Þannig verður önnur akrein af tveimur í austurátt opin fyrir umferð. Við brú yfir Gljúfurholtsá, verður umferð í vesturátt hleypt á aðra af akreinunum í austur, en verður svo beint yfir á rétta akrein í vesturátt, rétt vestan við brúnna.

Athygli er vakin á því að umferðarhraði verður takmarkaður við 50 km/klst á nýja kaflanum á meðan á framkvæmdum stendur og hámarkshraðinn verður 30 km/klst í austurendanum við Gljúfurholtsá.

Einnig er þess óskað að ökumenn fari eftir öllum vegamerkingum á svæðinu og fylgi öllum gátskiltum.

Fyrri greinUnglingalandsliðskonur framlengja á Selfossi
Næsta greinHamar í kröppum dansi