Ný þjónustu- og verslunarmiðstöð fyrir ferðamenn hefur verið opnuð í Vík í Mýrdal en yfir ein milljón ferðamanna heimsækir Vík árlega og var öll aðstaða fyrir þá á svæðinu löngu sprungin.
„Fjöldi ferðamanna hér í Vík hefur aukist gríðarlega á undanförnum sjö árum og það var löngu orðið tímabært að bæta aðstöðu fyrir þá. Nýja þjónustumiðstöðin gjörbreytir allri aðstöðu hér og okkur hlakkar til að taka vel á móti ferðalöngum sem leggja leið sína í Vík í Mýrdal,“ segir Ágúst Þ. Eiríksson, eigandi Icewear, og forsvarsmaður verkefnisins.
Heildarfermetrafjöldi þjónustu- og verslunarmiðstöðvarinnar er 4.000 fermetrar og er hún hönnuð með það í huga að mæta þörfum ferðamanna. Þar eru til dæmis yfir tuttugu og fimm salerni sem ferðamenn geta nýtt sér endurgjaldslaust, ásamt fjölbreyttri verslun og þjónustu. Næg bílastæði eru við miðstöðina og þar eru sérmerkt stæði fyrir rútur og stærri bifreiðar.