Jón Þór Birgisson skógfræðingur hefur verið ráðinn tímabundið til starfa hjá Skógræktinni til að sinna nytjaskógrækt á lögbýlum á Suðurlandi.
Jón Þór leysir Hörpu Dís Harðardóttur af frá og með 1. nóvember þegar Harpa Dís tekur eins árs leyfi frá störfum hjá Skógræktinni.
Jón Þór er skógfræðingur og lauk B.s.-prófi í skógfræði frá Landbúnaðarháskóla Íslands 2009 en hefur einnig iðmenntun að baki. Hann hefur verið búsettur í Danmörku síðustu árin þar sem hann hefur starfað hjá dönsku þjóðskógunum en undanfarin misseri hjá dönsku rafiðnfyrirtæki. Jón Þór er Selfyssingur með reynslu af iðnaðar-, landbúnaðar- og skógræktarstörfum hér heima, meðal annars hjá Skógræktinni í Haukadal og hjá Suðurlandsskógum.
Verkefni Jóns Þórs verður að þjóna nytjaskógrækt á lögbýlum á Suðurlandi og veita skógarbændum ráðgjöf um gróðursetningu, grisjun og aðra umhirðu, auk áætlanagerðar einstakra svæða og úttektar þeirra.