Gert er ráð fyrir að nýtt hjúkrunarheimili í Árborg verði auglýst til útboðs í næstu viku. Húsið mun rísa á lóð Heilbrigðisstofnunar Suðurlands við Árveg á Selfossi.
Sigurður Norðdahl, verkfræðingur og verkefnastjóri hjá Framkvæmdasýslu ríkisins, staðfesti þetta í samtali við sunnlenska.is.
Verkið hefur átt talsverðan aðdraganda en í september 2016 skrifuðu Sveitarfélagið Árborg og Velferðarráðuneytið undir samning um byggingu hjúkrunarheimilisins. Í október árið 2017 voru tilkynnt úrslit í hönnunarsamkeppni um húsið og við sama tækifæri var undirritaður samningur milli ríkis og Sveitarfélagsins Árborgar að stækka heimilið úr fimmtíu í sextíu dvalarrými.
Áætlaður heildarkostnaður við bygginguna var tæplega 1,7 milljarðar króna árið 2017. Ríkissjóður og Framkvæmdasjóður aldraðra munu greiða 84% af kostnaðinum en Sveitarfélagið Árborg mun greiða 16% af áætluðum kostnaði.
Gert er ráð fyrir að framkvæmdum við hjúkrunarheimilið verði lokið sumarið 2021 og að hægt verði að taka það í notkun með haustinu 2021.