Nýttu sér lagaheimild eftir að útboð mistókst

Stjórn Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) nýtti sér heimild í lögum um opinber innkaup eftir að útboð í akstur almenningsvagna á Suðurlandi hafði mistekist.

Vegna ummæla lögfræðings Bíla og fólks ehf. í hádegisfréttum RÚV sl. laugardag vill stjórn SASS taka fram að stjórnin samþykkti á fundi sínum 3. nóvember sl. að taka lægsta tilboði í akstur almenningsvagna á Suðurlandi frá Bílum og fólki ehf, sem hljóðaði upp á tæpar 120 milljónir.

„Þar með komst á samningur sem fyrirtækið ákvað síðan að efna ekki. Önnur tilboð voru það langt frá kostnaðaráætlun að ekki kom til greina að taka þeim,“ segir í yfirlýsingu sem SASS sendi frá sér í morgun.

Þar sem útboðið hafði mistekist af ofangreindum ástæðum ákvað stjórn SASS að nýta sér heimild í lögum um opinber innkaup til samningskaupa. Í kjölfarið náðust samningar við Hópbíla hf sem undirritaðir voru sl. föstudag.

Í yfirlýsingu SASS kemur fram að samningsupphæðin við Hópbíla nemi um 127 milljónum en ekki 188 milljónum eins og lögmaður Bíla og fólks hélt fram í fréttum RÚV.

„Í þessu máli hefur stjórn SASS farið að lögum í einu og öllu og haft hagsmuni almennings í fyrrirúmi,“ eru lokaorð yfirlýsingar SASS vegna málsins.

Fyrri greinFrábær árangur Selfyssinga
Næsta greinÆtla að kaupa Úlfljótsvatn