Lögreglan á Selfossi var kölluð að Hótel Selfossi í nótt til þess að fjarlægja óboðinn gest.
Brún og hvít kanína hafði laumast inn á hótelið í skjóli nætur og handsömuðu lögreglumennirnir hana.
Kanínan er nú vistuð á lögreglustöðinni, þar sem eigandi getur vitjað hennar.