Veiðimálastofnun hefur sent frá sér niðurstöður rannsóknar á fiskistofnum og lífríki Sogsins. Þar virðist hafa verið veitt meira en laxastofninn þolir og vatnsborðshækkanir hafa valdið seiðum búsifjum.
Veiði í Soginu hefur verið vaxandi síðustu sumur og sennilegast má rekja það til uppkaupa á netum í Ölfusá. Hvað sem því líður þá hefur þessi veiðiaukning ekki endurspeglað alla söguna í lífríki Sogsins þar sem eru sem kunnugt er þrjár virkjanir og ein slík dygði til að hafa áhrif á lífríki árinnar.
Niðurstöður fiskifræðingana eru athyglisverðar, ekki hvað síst hversu léleg hrygning er í efsta hluta árinnar.