Miðað við ölduspá er ólíklegt að unnið verði að sanddælingu í Landeyjahöfn. Ekki er fyrirsjáanlegt hvenær hægt verður að opna höfnina.
Það sem af er árinu hefur tíðafar verið óhemju erfitt m.t.t. dýpkunar í Landeyjahöfn en við slíku má vissulega búast um hávetur. Frá því sanddæluskipið Skandia kom til landsins hefur aðeins gefist samtals rúmur sólarhringur til dýpkunar, en til að skipið geti athafnað sig þarf ölduhæðin að vera undir 2 metrum.
Á vef Siglingastofnunar segir að góðu tíðindin eru þó þau að lítið af sandi hafi borist inn í höfnina frá því hún lokaðist um miðjan janúar og fyrirstaðan í hafnarmynninu hefur minnkað. Efnið sem fjarlægja þarf til að opna siglingaleiðina er innan við fimmtungur frá því mest var sl. haust eða um 5000m³.