Sveitarfélagið Ölfuss hefur gerst aðili að Markaðsstofu Suðurlands og eru nú 14 af 15 sveitarfélögum á starfssvæðinu aðilar að Markaðsstofunni auk fjölda fyrirtækja.
Markaðsstofa Suðurlands hefur í á annað ár unnið að öflugu markaðsstarfi á Suðurlandi með áherslu á að auka atvinnustarfsemi og gjaldeyristekjur á sviði ferðaþjónustu í landshlutanum.
Ölfus greiðir til Markaðsstofunnar 350 krónur á hvern íbúa í sveitarfélaginu en á móti vinnur Markaðsstofan að eflingu og vexti ferðaþjónustu, með kynningu og markaðssetningu og með því að aðstoða fyrirtæki og einstaklinga við að auka gæði og þjónustu.
Í frétt á heimasíðu Ölfuss segir að stjórn Markaðsstofunnar sjái ákveðin sóknarfæri í opnun Suðurstrandarvegar og muni leitast við að aðstoða sveitarfélagið og fyrirtæki sem starfa að ferðaþjónustu við að nýta þau tækifæri sem þá munu bjóðast.
Samningurinn tekur gildi 1. janúar nk.