Ölfus kaupir öflugan dráttarbát

Ljósmynd/Aðsend

Fyrr í dag skrifuðu Faxaflóahafnir og Sveitarfélagið Ölfus sem á og rekur höfnina í Þorlákshöfn undir kaup og sölu á dráttarbátnum Jötni. Kaupverðið er 220,5 milljónir króna.

Jötunn var smíðaður í Hollandi árið 2008 og hefur verið í eigu Faxaflóahafna síðan þá. Hann er 19,3 metra langur og 96 brúttótonn. Togkraftur hans er upp á 27 tonn. Báturinn er með tvær 1.000 hestafla Caterpillar aðalvélar og 107 hestafla hliðarskrúfu.

Fyrsti dráttarbáturinn sem ber kvenmannsnafn
Við kaupin mun báturinn fá nafnið „Herdís“ og verður það fyrsti dráttarbáturinn í sögu hafnareksturs hér á landi sem ber kvennmannsnafn. Með nafninu er vísað til eins þekktasta kennileitis sveitarfélagsins, Herdísarvíkur, þar sem lengi vel var kunn verstöð með fjölda sjóbúða og sér enn fyrir tóftum margra þeirra.

Enn meiri sókn framundan
„Þorlákshöfn er í dag ein af lykilvöruhöfnum landsins og enn meiri sókn framundan. Kaupin á dráttarbátnum eru eitt þeirra atriða sem við þurftum að tryggja til að framtíðar áform okkar gangi eftir. Við höfum orðað það svo að þau hafi verið nauðsynleg en hreint ekki nægjanleg. Næsta skref er að stækka höfnina þannig að hægt verði að taka inn allt að 180 metra löng og 30 metra breið skip. Við höfum trú á því að hægt verði að ljúka undirbúningi síðla árs og hefja verklega framkvæmd þar að lútandi á næsta ári,“ segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri.

„Til marks um hversu mikil áhrif slík framkvæmd myndi hafa þá hafa skipafélög sýnt því áhuga að hefja hingað siglingar á farþegaskipum í beinum og reglulegum siglingum á bæði Bretland og meginland Evrópu. Þar með geta inn- og útflytjendur valið milli þriggja ferða héðan frá Þorlákshöfn í hverri viku, en Smyril line er í dag með ferjurnar Akranes og Mykines í vikulegum siglingum. Markmið okkar er einfalt, Þorlákshöfn á að vera lykilhöfn í siglingum með vörur og farþega milli Íslands og Evrópu en samhliða að þjóna fiskiskipaflotanum til jafns á við það sem best gerist,“ bætir Elliði við.

Fyrri greinGuðrún ráðin aðstoðarskólastjóri
Næsta greinSelfoss úr keppni eftir fjörugan leik