Lögreglan á Suðurlandi fór eftirlitsferð inn á Fjallabak um liðna helgi. Einn ölvaður ökumaður varð á vegi lögreglumannanna aðfaranótt páskadags, sá var á ferð við Landmannahelli.
Ökumaðurinn var færður til blóðsýnatöku eins og venja er og mun verða sviptur ökurétti og sæta sektum ef áfengismagn í blóði hans reynist yfir mörkum.
Lögreglan á Suðurlandi er með þrjá jeppa til fjallferða, tvo þeirra, þá sem hér sjást á mynd, mikið breytta og því mögulegt að sinna eftirliti sem þessu án mikils fyrirvara.