Opinn fundur á Höfn um stöðu íbúðauppbyggingar á Suðurlandi

Höfn í Hornafirði. Ljósmynd/Sigurjón Andrésson

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Tryggð byggð og Samtök iðnaðarins standa fyrir fundarröð um land allt um stöðu íbúðauppbyggingar og framtíðarhorfur.

Í samstarfi við Samtök sunnlenskra sveitarfélaga er boðað til fundar um stöðu íbúðauppbyggingar á Suðurlandi. Fundurinn verður haldin á Hótel Höfn mánudaginn 18. nóvember og hefst kl. 12:00. Boðið verður upp á súpu og brauð. Fundinum verður einnig streymt á facebook síðu HMS.

Fundarstjóri er Brynja Dögg Ingólfsdóttir, umhverfis- og skipulagsstjóri sveitarfélagsins Hornafjarðar, og mun hún einnig flytja erindi um áskoranir við íbúðauppbyggingu í dreifbýli. Þá munu Jón Örn Gunnarsson og Róbert Smári Gunnarsson, sérfræðingar hjá HMS, fara yfir stöðu íbúðauppbyggingar og framtíðarhorfur á Suðurlandi og Þorgils Helgason, viðskiptastjóri á mannvirkjasviði Samtaka iðnaðarins, flytur erindið Byggjum í takt við þarfir.

Skráning á fundinn

Fyrri greinIndverskur veitingastaður opnar í miðbæ Selfoss
Næsta greinBiskup Íslands á ferð um Suðurland