Opinn fundur um heilbrigðis- og öldrunarmál í Árborg

Alma Möller og Víðir Reynisson.

Samfylkingin í Suðurkjördæmi býður til opins fundar um heilbrigðis- og öldrunarmál með Ölmu Möller ásamt frambjóðendum Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi.

Fundurinn verður haldinn sunnudaginn 10. nóvember í Mörkinni, Austurvegi 51 Selfossi. Húsið opnar kl. 13:00.

Á fundinum verður fjallað um mikilvægi þess að tryggja eldra fólki góða og örugga þjónustu innan heilbrigðiskerfisins. Alma Möller mun fjalla um áskoranir og tækifæri í öldrunarmálum og hvernig hægt er að efla stuðning og umönnun fyrir þennan mikilvæga hóp samfélagsins.

Samfylkingin hefur kynnt stefnu sína í heilbrigðis- og öldrunarmálum undir yfirskriftinni „Örugg skref“. Lögð er áhersla á að bæta grunnþjónustu, efla heimaþjónustu og hjúkrunarrými, auk þess að tryggja samfellda og áreiðanlega heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk.

Öll velkomin að koma og taka þátt í mikilvægu samtali um framtíð heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk. Þín þátttaka skiptir máli!

Fyrri greinÍþróttahreyfingin betur í stakk búin fyrir aðgerðir
Næsta greinSporin hræða vissulega