Gönguleiðin inn Reykjadal mun opna á hvítasunnudag, þann 31. maí, eftir lokun undanfarnar vikur.
Lokunartíminn hefur verið nýttur til endurbóta á gönguleiðinni en jafnframt hefur verið sett upp ný brú yfir Hengladalaá sem leysir af hólmi gömlu staurabrúna sem komin var tími á.
Göngustígurinn hefur tekið nokkrum breytingum og hefur hann nú verið færður frá hverunum í hlíðinni í dalnum en þar hafði skapast mikið hættuástand sem bregðast varð við. Brúin sem lögð hafði verið yfir hverinn hefur verið fjarlægð.
Í tilkynningu frá Aldísi Hafsteinsdóttur, bæjarstjóra í Hveragerði, kemur fram að mikilvægt sé að göngumenn taki tillit til aðstæðna, muni að verið er að fara um svæði þar sem hverir geta skapað hættu og verið hættulegir á mörgum stöðum. Ávallt skal fylgja merktum gönguleiðum.