Félag skógareigenda á Suðurlandi (FsS), í samstarfi við Skógræktina, boða til fjögurra opinna funda um skóg- og skjólbeltarækt í næstu viku.
Fundirnir verða 4. október kl. 17 á Götum í Mýrdal, 5. október kl. 20 á Hótel Klaustri, 6. október kl. 17 í Goðalandi Fljótshlíð og 7. október kl. 20 á Hótel Selfossi.
Fundirnir eru haldnir m.a. til að skerpa umræðuna á stöðu nytjaskógræktar og skjólbeltaræktar á Suðurlandi, m.a. með tilliti til bindingar á kolefni í skógum og möguleikum bænda á að kolefnisjafna bú sín með skógrækt og jafnvel á sölu á umfram kolefnisbindingu skóga á einstaka jörðum. Einnig verður rætt um nýtt félagskerfi bænda, stöðu og framtíðarsýn nytjaskógræktar/skjólbeltaræktar, fræðslumál o.fl.
Dagskrá fundanna er:
- Starf skógarbænda á Suðurlandi.
- Hlutverk FsS – Björn Bjarndal
- Að vera skógarbóndi – Ísólfur Gylfi Pálmason
- Að taka þátt í leshópum um skógrækt og skjólbeltarækt. Skráning hefst í þriggja ára leshóparöð.
- Nýtt félagskerfi skógarbænda – Guðrún Birna Brynjarsdóttir
- Kolefnisbrúin – Hlynur Gauti Sigurðsson
- Horft til framtíðar í nytja- og skjólbeltarækt.
Sérfræðingar Skógræktarinnar á Suðurlandi ræða um stöðu nýtjaskógræktar og skjólbeltaræktar á Suðurlandi, m.a. með tilliti til bindingar kolefnis í skógum og önnur verkefni Skógræktarinnar.
- Almennar umræður.
Starfið framundan:
Hvert á hlutverk skógarbænda að vera í grisjun og umhirðu skóga, ásamt úrvinnslu skógarafurða.
Hvers konar verktakavinnu vantar í skjólbelta- og skógrækt? Hver, hvar, hvernig?
Fræðsla fyrir skjólbelta- og skógarbændur.
Fundirnir eru öllum opnir. Horfum til framtíðar.