Ákveðið hefur verið að Bókasafnið í Hveragerði loki kl. 18:30 á virkum dögum frá 1. júní nk.
Þetta er gert til samræmis við aðra þjónustuaðila í Sunnumörkinni en einnig vegna lítillar aðsóknar að safninu síðasta hálftímann á virkum dögum í vetur.
Nýr opnunartími verður þá virka daga kl. 13:00-18:30 og laugardaga kl. 11-14. Viðburðir sem standa lengur eða eru á kvöldin verða auglýstir sérstaklega.
„Við gerum þetta til reynslu í sumar og tökum allar athugasemdir og óskir um breytingar á opnunartíma til skoðunar þangað til í haust,“ segir Hlíf S. Arndal, forstöðumaður bókasafnsins.