Orkustofnun hefur veitt Selfossveitum bs. leyfi til rannsókna á vatnasviði Ölfusár við Selfoss sem og á afmörkuðum svæðum á landi vegna mögulegrar virkjunar í ánni.
Leyfið tekur til rannsókna við að kanna hagkvæmni þess að reisa og reka vatnsaflsvirkjun í Ölfusá við Selfoss sem og á afmörkuðum svæðum á landi. Leyfið takmarkast við þær framkvæmdir sem kveðið er á um í rannsóknaráætlun og er fylgiskjal með leyfinu.
Leiði framangreindar rannsóknir til þess að leyfishafi hafi hug á virkjun á rannsóknarsvæðinu er unnt að gefa út viðbótarleyfi varðandi rannsóknir er varða staðsetningu og fyrirkomulag mannvirkja og geta haft rask í för með sér.
Leyfið felur ekki í sér heimild til nýtingar á vatnasviði rannsóknarsvæðisins. Komi til nýtingar þarf leyfishafi að sækja um sérstakt virkjunarleyfi og ná samkomulagi við umráðahafa vatnsréttinda á svæðinu um endurgjald fyrir auðlindina eða afla sér eignarnámsheimildar.