Sveitastjórnir Grímsnes- og Grafningshrepps og Bláskógabyggðar telja mikla hættu á umferðaslysum á nýja Lyngdalsheiðarveginum vegna óhefts aðgengis búfjár við veginn.
Lyngdalsheiðarvegur liggur um afrétt Grímsnesinga og Laugvetninga en ekki er girðing meðfram veginum. Hins vegar er búið að sá grasfræjum í vegkantinn og því er ljóst að búfénaður mun sækja í beit meðfram veginum.
Ingibjörg Harðardóttir, sveitarstjóri Grímsnes- og Grafningshrepps, segist hafa af þessu miklar áhyggjur. Mörg þúsund fjár sé á afréttinum auk þess sem þar séu sennilega 50-60 hross. Frágangur Vegagerðarinnar sé að öðru leyti til fyrirmyndar en beinn og breiður vegurinn býður upp á hraðan akstur. Bendir Ingibjörg á að ef búfé rásar snögglega upp á veg geta aðvífandi bifreiðar ásamt bílstjórum og farþegum þeirra orðið fyrir miklu tjóni.
Við smölun afréttar síðasta haust gekk erfiðlega að halda fénu frá veginum og hljóp það ítrekað upp á veginn með smalahunda í kjölfarið. Sveitarstjórnin hefur ályktað að „til þess að ekki hljótist alvarleg umferðarslys verði að girða beggja vegna vegarins og þó sú girðing muni kosta samfélagið einhverja fjármuni eru þeir ekkert á móti kostnaði sem getur orðið við bílslys. Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps fer því fram á að Vegagerðin girði veginn af nú þegar.“
Svanur Bjarnason, umdæmisstjóri Vegagerðarinnar, segir að málið verði skoðað með opnum hug. Það kostar nokkra tugi milljóna að girða meðfram Lyngdalsheiðarvegi en að líklega verði nýframkvæmdafé nýtt til verksins ef af verður. Það er hins vegar ekki sjálfgefið að girt sé með vegum sem liggja um afrétt og að Vegagerðin leggi að öllu jöfnu ekki í girðingarvinnu nema að tryggt sé að einhver, og þá venjulega landeigendur, sjái um viðhald girðingarinnar.