Leigubílstjóri kallaði eftir aðstoð lögreglu síðastliðið fimmtudagskvöld en hann var þá staddur á bílastæði við Skeiðavegamót.
Farþegar í bílnum höfðu orðið ósáttir og slegið til leigubílstjórans sem meiddist lítilega og gleraugu hans skemmdust.
Annar farþeganna gisti fangageymslur á Selfossi og var yfirheyrður um málsatvik morguninn eftir.