Öskumistur er á Hvolsvelli og austureftir, austurfyrir Kirkjubæjarklaustur. Askan er greinileg í snjónum í Víkurþorpi en austar í V-Skaftafellssýslu er öskubylur.
„Það er ekki búið að snjóa mikið hérna en það er skafrenningur og ofan í hann bætist askan,“ sagði íbúi í Vík í samtali við sunnlenska.is í morgun. „Enn austar hefur ekki snjóað en maður sér það á himninum að það er mikið öskumistur þar.“
Guðmundur Óli Sigurgeirsson á Klaustri segir í samtali við mbl.is að öskubylur sé á svæðinu.
Ekkert ferðaveður er í Vík og í Mýrdal. Björgunarsveitin Víkverji er að hefja störf við að koma skólabörnum heim og mun svo keyra leikskólabörnin heim síðar í dag.
UPPFÆRT KL. 13:32
Útsýnið á Hvolsvelli í morgun. sunnlenska.is/Sigurður Jónsson