Matvælastofnun og Tilraunastöð HÍ á Keldum rannsaka nú óþekktan sjúkdóm sem kom upp í hópi útigangshrossa á Suðurlandi í síðustu viku. Um er að ræða mjög alvarlegan sjúkdóm sem einkennist af háum hita en auk þess hefur hluti hrossanna fengið mikinn bjúg á framfætur, brjóst og jafnvel haus.
Alls hafa þrettán hross veikst af þrjátíu hrossa hópi. Þar af hafa sex hross drepist en önnur eru mögulega á batavegi. Veikin kom samtímis upp í stóðinu á Suðurlandi og í hrossum frá sama eiganda sem tekin voru á hús á höfuðborgarsvæðinu þann 21. nóvember. Þar á meðal er eitt hross sem kom úr öðru umhverfi og annað sem hafði verið í húsinu í tvo mánuði.
Í tilkynningu frá Matvælastofnun segir að ekki hafi bæst við ný tilfelli frá 25. nóvember og ekkert bendir til þess að um bráðsmitandi sjúkdóm sé að ræða. Til öryggis hefur verið gerð krafa um ítrustu smitvarnir, bæði í kringum hesthúsið og útigangshrossin.
Takmarkaðar vísbendingar hafa komið fram um orsök sjúkdómsins enn sem komið er, en rannsóknin er enn í fullum gangi. Sjúkdómurinn er rannsakaður sem afmörkuð hópsýking eða eitrun af einhverju tagi.
Bakteríuræktun hefur engu skilað enn sem komið er og niðurstöður krufninga eru enn í vinnslu. Sýni hafa verið send erlendis til veirurannsókna en hraðpróf sem framkvæmd eru á Keldum hafa verið neikvæð. Umhverfissýni eru í rannsókn hjá Matís.
Hestamenn eru hvattir til að vera vakandi fyrir einkennum í hrossum og hafa samband við starfandi dýralækna ef þeir telja ástæðu til.