Segja má að algert hrun hafi orðið í laxveiði í Þjórsá það sem af er sumri. Einar Haraldsson, bóndi á Urriðafossi, segir að veiðin nú sé um það bil 25%
af því sem hún var á síðasta ári sem var í slöku meðallagi.
Metveiði var hins vegar árið 2010. Einar segist ekki sjá neinar augljósar skýringar á þessu, þvert á móti séu skilyrði í ánni með afbrigðum góð. Við Urriðafoss
hefur verið mesta veiðin og sagði Einar að þessu fylgdi verulegt tekjutap.
Magnús Jóhannsson, sviðsstjóri hjá Veiðimálastofnun, segir að hafa verði í huga að allstaðar virðist veiði vera í slöku meðallagi. Svipað ástand virtist þannig vera á vatnasvæði Ölfusár og Hvítár. Magnús benti á að í Þjórsá hafi verið vaxandi laxveiði undanfarin ár en nú væri augljóst bakslag. Hann benti á að það vekti athygli að talning við fossinn Búða, ofarlega í Þjósrá, sýndi að þar væri nokkuð af fiski að koma inn á nýtt svæði.
En hvað skyldi valda þessum breytingum núna?
Einar sagðist ekki hafa neina einhlíta skýringu en hann hlyti þó að horfa til tveggja þátta. Annars vegar að makríllinn sé nýbyrjaður að ganga upp að landinu og óhjákvæmilegt sé að ætla að hann hafi áhrif á lífríkið. Í öðru lagi nefndi Einar að árið 2010 hefði Landsvirkjun í tvígang opnað fyrir lokur hjá sér þannig að jökulleir hefði borist í ánna.
Magnús sagði að erfitt væri að segja hvaða áhrif makríllinn hefði, það gæti þó vissulega haft sitt að segja að hann sé í samkeppni við aðrar tegundir um æti. Magnús staðfesti einnig að það hefði verið mikið grugg í Þjórsá 2010. Sama ár hefðu einsársseiðin verið óvenju smá. ,,Seiðarannsóknir hafa hins vegar sýnt að þeir árgangar sem áttu að skila sér núna voru slakir. Þar af leiðandi hafa færri seiði gengið til sjávar. Það ásamt skilyrðum í sjó hefur áhrif,” sagði Magnús.