Sjóðurinn góði úthlutar styrkjum fyrir jólin til einstaklinga og fjölskyldna í Árnessýslu sem eiga í fjárhagserfiðleikum.
Eins og undanfarin ár mun Kvenfélag Selfoss í samvinnu við Bókasafn Árborgar á Selfossi taka á móti jólagjöfum sem úthlutað verður til barna styrkþega Sjóðsins góða.
Jólatréð verður í bókasafninu frá 1. desember. Vegna umhverfissjónarmiða eru endurunnir heimasaumaðir jólapokar fyrir jólagjafirnar fyrir þá sem þess óska, og munu þeir liggja frammi á bókasafninu, gegn vægu gjaldi, kr. 200.
Gefendur eru hvattir til að nýta þessa poka. Pokarnir eru eingöngu ætlaðir fyrir Sjóðinn góða. Merkispjöld verða á staðnum og merkja þarf gjafirnar með kyni og aldri eftir því sem við á.
Síðasti skiladagur jólagjafa á bókasafnið er 14. desember.