Pakkhúsið til sölu

Bæjarráð Árborgar samþykkti á fundi sínum í síðustu viku að fela framkvæmdastjóra sveitarfélagsins að undirbúa sölu á eignarhlut þess í Borgarþróun ehf. og Pakkhúsinu við Austurveg 2b á Selfossi.

Pakkhúsið hýsir Jarðskjálftamiðstöð Háskóla Íslands, ungmennahúsið Pakkhúsið og félagsmiðstöðina Zelzíus. Borgarþróun ehf. á hluta hússins, en það félag er í eigu Sveitarfélagsins Árborgar og Atvinnuþróunarfélags Suðurlands. Samþykkt var í stjórn félagsins að setja eignina á sölu.

Sá hluti hússins sem Borgarþróun á ekki er að fullu í eigu sveitarfélagsins en reynt verður að selja húsið sem eina heild.

Möguleg sala á ekki að hafa áhrif á starfsemi félagsmiðstöðvarinnar, en Ásta Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Árborgar, segir að gerður yrði leigusamningur við kaupanda um það rými. Sveitarfélagið hefur lagt fjármagn í að gera húsnæðið upp fyrir ungmennahúsið og félagsmiðstöðina.

Auk þess að losa sveitarfélagið við eignir er mögulegri sölu ætlað að laga skuldastöðu þess. Vinnan við söluferlið er á byrjunarstigi og engin tilboð hafa borist.

Sveitarfélagið eignaðist allt Pakkhúsið snemma sumars árið 2007 þegar það keypti þann hluta hússins sem hýsti skemmtistaðinn Pakkhúsið og Pizza 67 af Gunnari B. Guðmundssyni. Ásett verð á þeim hluta hússins var á sínum tíma 57 milljónir króna en sveitarfélagið átti fyrir þann hluta hússins sem hýsir Jarðskjálftamiðstöðina.

Húsið var þá víkjandi á skipulagi og vildu bæjaryfirvöld rífa það til þess að rýma fyrir uppbyggingu í miðbænum. Um tvöþúsund íbúar í sveitarfélaginu skrifuðu undir mótmæli gegn því að húsið yrði rifið.

Kaupfélag Árnesinga lét byggja Pakkhúsið árið 1941.

Fyrri greinStolið úr bílum á Hvolsvelli
Næsta greinFannst sofandi með mikla áverka