Pétur Kr. lætur af störfum

Pétur Kr. Hafstein á Stokkalæk, forseti kirkjuþings, hefur af heilsufarsástæðum sagt af sér embætti forseta og jafnframt þingfulltrúastarfi fyrir Suðurprófastsdæmi.

Jafnframt lætur hann af öðrum trúnaðarstörfum í þágu þjóðkirkjunnar.

Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, þakkar Pétri fyrir ómetanlegt framlag í þágu kirkjunnar.,

„Pétur Kr. Hafstein hefur þjónað kirkju sinni af mikilli trúmennsku og yfirburðaþekkingu. Hann hefur verið einstaklega traustur samstarfsmaður, ötull og einbeittur forystumaður á tímum mikilla umbreytinga og átaka. Ég bið honum og fjölskyldu hans blessunar Guðs við þessi þáttaskil, að hann megi ná góðum bata, heilsu og kröftum á ný.“

Fyrsti varaforseti kirkjuþings, Margrét Björnsdóttir, tekur við embætti forseta kirkjuþings uns kosið hefur verið til embættisins að nýju á kirkjuþingi í nóvember næstkomandi.

Fyrri greinEiríkur ráðinn forstöðumaður
Næsta greinThe Young and Carefree komnir í úrslit