Presta og sóknarprest greinir á um starfsreglur

Prestar og sóknarprestur Selfosskirkju eru ekki á einu máli um hvort heimilt sé öðrum en biskupi að meina prestum sem uppvísir hafa orðið að kynferðisbrotum að þjóna í kirkjunni.

Biskup sendi í byrjun mánaðarins prestum kirkjunnar og fleirum tölvupóst þar sem hann gerir athugasemd við nýjar starfsreglur Selfosskirkju og telur vafa undirorpið hvort sóknarnefnd og prestar geti meinað ákveðnum prestum að annast athafnir í kirkju.

„En saga yrði það til næsta bæjar ef nota ætti starfsreglur kirkjunnar til að opna leið þeirra í kirkju sem uppvísir hafa orðið að kynferðisbrotum til að annast þar athafnir og mæta jafnvel fórnarlömbum sínum,“ segir í grein sem birtist í Fréttablaðinu í gær, en hana rita tveir prestar Selfosskirkju, Óskar Hafsteinn Óskarsson og Nanna Sif Svavarsdóttir, ásamt sóknarnefndarmanninum Grími Hergeirssyni lögmanni. „Ekki verður efast um heimild sóknarnefndar […] til að setja sér vinnureglur og marka stefnu gegn kynferðisbrotum í samráði við prestana.“

Sóknarnefndin og prestarnir tveir sömdu nýju reglurnar án aðkomu sóknarprestsins, Kristins Ágústs Friðfinnssonar. Hann hefur sagst þeirrar skoðunar að breyta þurfi nýju starfsreglunum, agavald kirkjunnar sé hjá biskupi einum.

Fréttablaðið greindi frá þessu

Fyrri greinSamið um akstursþjónustu
Næsta greinSíðustu dagar jólagarðsins