Sjálfstæðismenn í Suðurkjördæmi ákváðu á aðalfundi kjördæmaráðs í gær að efna til prófkjörs 29. maí vegna alþingiskosninganna í haust.
Ingvar Pétur Guðbjörnsson, formaður kjördæmaráðs Sjálfstæðisflokksins, staðfestir þetta við mbl.is. Næstu skref eru þau að kjörnefnd undirbýr prófkjör og tilkynnir framboðsfrest.
mbl.is greinir frá því að núverandi þingmenn flokksins, þeir Ásmundur Friðriksson, Páll Magnússon og Vilhjálmur Árnason, ætli allir að bjóða sig fram til áframhaldandi þingsetu.