Lögreglan á Selfossi stöðvaði för ökumanns um Biskupstungnabraut á áttunda tímanum í kvöld.
Í ljós kom að ökumaðurinn var undir áhrifum fíkniefna og án ökuréttinda.
Maðurinn var færður á lögreglustöðina á Selfossi þar sem blóðsýni var tekið og honum sleppt að því loknu.