Ráðherra kynnir hálendisþjóðgarð

Ljósmynd/stjornarradid.is

Umhverfis- og auðlindaráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, fer á næstu dögum í hringferð um landið og kynnir áform um stofnun Hálendisþjóðgarðs.

Fimmtudaginn 9. janúar verður ráðherra með fundi á Suðurlandi, kl. 13:00 á Hótel Skaftafelli í Freysnesi og kl. 18:00 í Midgard á Hvolsvelli.

Frumvarpið tekur til stofnunar þjóðgarðs á miðhálendi Íslands, á landsvæði sem er í sameign þjóðarinnar; þjóðlendum og friðlýstum svæðum innan miðhálendisins. Þetta er í samræmi við tillögur nefndar fulltrúa allra þingflokka og stjórnvalda, bæði ríkis og sveitarfélaga, sem vann að undirbúningi stofnunar þjóðgarðsins.

Á fundunum mun ráðherra m.a. fara yfir forsendur og markmið með stofnun Hálendisþjóðgarðs og kynna helstu atriði frumvarpsins.

Fundirnir eru öllum opnir – verið velkomin.

Fyrri greinAppelsínugul viðvörun: Ráðlegt að fresta ferðalögum
Næsta greinBúist við veglokunum á laugardag