Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar og nýsköpunarráðherra og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra heimsóttu Carbfix á Hellisheiði í gær.
Ráðherrarnir fengu kynningu á starfsemi fyrirtækisins og Carbfix tækninni sem byggir á íslensku hugviti sem bindur koldíoxíð varanlega í bergi á innan við tveimur árum.
Í kynningunni komu fram áform um að auka umfang starfseminnar verulega á næstu árum og byggja upp innviði til niðurdælingar á milljónum tonna af koldíoxíð m.a. í tengslum við Coda verkefnið í Straumsvík. Mikilvægt verði að þróa tæknina áfram til að hámarka megi áhrif hennar á loftslagsaðgerðir hér innanlands og alþjóðlega.
Þá kom fram að Carbfix muni áfram leggja áherslu á að efla nýsköpun og þróun á tækninni svo undirbyggja megi langtímamarkmið um kolefnisförgun og bjóða upp á ráðgjöf innanlands og erlendis um fýsileika kolefnisbindingar í bergi.