Rafmagnslaust er á stórum hluta Suðurlands eftir að spennir í Búrfellsvirkjun sló út klukkan 14:09 í dag.
Það var spennir-4 sem leysti út og þar sem spennir-5 er ekki í notkun vegna viðhalds þá varð straumlaust í uppsveitum Árnessýslu og austan Þjórsár að Vík í Mýrdal, ásamt Vestmannaeyjum.
UPPFÆRT KL. 14:37: Rafmagn er komið á Hellu, unnið er að því að koma rafmagni á aðra hluta kerfisins.
UPPFÆRT KL. 14:43: Rafmagn er komið á Hvolsvöll, unnið er að því að koma rafmagni á aðra hluta kerfisins.
UPPFÆRT KL. 14:50: Rafmagn er nú komið til allra notenda og kerfið komið í eðlilegan rekstur.